Mörg þúsund manns mótmæltu á Austurvelli
Mótmælendum fer fjölgandi í vikulegum laugardagsmótmælum á Austurvelli. Mörg þúsund manns sóttu mótmælafundinn í dag, þar sem tóku til máls Sigurbjörg Árnadóttir, fyrrverandi fréttamaður RÚV í Finnlandi, Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur, Arndís Björnsdóttir, kennari og Einar Már Guðmundsson, rithöfundur. Fundarstjóri var Hörður Torfason, tónlistarmaður.
Mótmælin hófust með því að vélhjólaflokkur
reykspólaði framan við Alþingishúsið svo það sást ekki fyrir reyk. Skömmu síðar dró einn mótmælenda fána Bónus verslunarkeðjunnar að húni á fánastöng Alþingishússins. Hann komst undan lögreglu með hjálp félaga sinna en starfsmaður Alþingis tók fánann niður.
Mótmælendur voru á öllum aldri. Einhverjar stympingar urðu milli lögreglu og ungra mótmælenda sem köstuðu eggjum og tómötum í Alþingishúsið undir lok fundarins.
Húsfyllir var líka á opnum borgarfundi í Iðnó þar sem Lilja Mósesdóttir hagfræðingur, Pétur Tyrfingsson sálfræðingur, Ingólfur H. Ingólfsson fjármálaráðgjafi og Halla Gunnarsdóttir blaðamaður fluttu ræður. Einnig voru á fundinum þingmennirnir Ágúst Ólafur Ágústsson, Illugi Gunnarsson, Valgerður Sverrisdóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Magnús Þór Hafsteinsson. Þeim fundi verður útvarpað í Ríkisútvarpinu í þætti Ævar Kjartanssonar Í heyranda hljóði á Rás 1 á þriðjudagskvöld.
Myndir: Sigurður Bogi o.fl.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
