Mánudagur 10.11.2008 - 18:18 - Ummæli ()

Bretar segjast heilshugar fylgjandi láni IMF til Íslands – sem … geti þó ekki vænst „sérmeðferðar“

ogco_imf_0607.jpgStjórnvöld í Bretlandi segjast styðja lánsumsókn Íslendinga hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum heilshugar.

Talsmaður breska fjármálaeftirlitsins heldur þessu fram, en þess væri þó ekki að vænta að Ísland fengi sérmeðferð hjá sjóðnum, enda kvæðu reglur sjóðsins skýrt á um að umsækjendur þyrftu að hafa komist að samkomulagi við lánardrottna sína.

Þessa viku ræðir stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins málefni El Salvadors, Líbanons, Seychelleseyja og Armeníu.
Enn mun vera óákveðið hvenær stjórnin afgreiðir umsókn Íslendinga um lán, en blaðafulltrúi, sem greindi fréttastofu RÚV frá þessu, gaf engar skýringar á því hvað tefði lánið.

Össur Skarphéðinsson, starfandi utanríkisráðherra, sagði í fréttum Ríksútvarpsins í gær að Bretar stæðu í vegi fyrir afgreiðslu umsóknarinnar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is