Mánudagur 10.11.2008 - 17:12 - Ummæli ()

ESB-ríkin: Hugsanlegt að lána Íslendingum „örlán“ með skilyrðum

eu_img.jpgTalsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Johannes Laitenberger, segir möguleika á að Evrópusambandsríkin taki höndum saman um að veita Íslendingum „örlán“.

Um væri að ræða hlutfallslega lágar upphæðir sem ekki skiptu sköpum heldur væru lánin hugsuð sem pólitískur stuðningur og nokkurskonar málamyndaviðauki við lán frá öðrum.

Laitenberger sagði þó skilyrði fyrir lánunum og að ekki kæmi til lánveitinga nema Íslendingar semdu við Breta og Hollendinga um endurgreiðsluáætlun vegna tapaðra inneigna erlendra fjárfesta.
Þetta kom fram í fréttum á RÚV.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is