Fjármálaráðuneytið: Ráðuneytin skeri niður um rúma 50 milljarða króna á næsta ári
Fjármálaráðuneytið hefur sent frá sér bréf til allra ráðuneyta þar sem óskað er eftir sparnaðartillögum sem nemi 10% af ársveltu hvers ráðuneytis.
RÚV greindi frá þessu.
Ráðuneytunum er gert að spara rúma 50 milljarða króna á næsta ári, en sparnaðartillögur skulu liggja fyrir í lok þessarar viku. Útgjöld allra tólf ráðuneytanna fyrir komandi ár eru 507 milljarðar á verðlagi þess árs, en áætlaðar tekjur ríkisins á fjárlögum eru tæpum 57 milljörðum króna lægri en útgjöldin.
Um er að ræða tæplega 51 milljarðs króna sparnað ef tillaga fjármálaráðuneytisins nær fram að ganga, en samt sem áður næmi halli á ríkissjóði um sex milljörðum.
Útgjöld heilbrigðisráðuneytis mundu dragast saman um sem nemur tæpum 12 milljörðum króna, en til samanburðar má nefna að rekstur Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri kostar tæpa fimm milljarða. Félags- og tryggingamálaráðuneytinu er
gert að spara sem nemur rúmum tíu milljörðum króna, eða sem samsvarar heildarútgjöldum ríkisins í barnaverndarmálum og málefnum fatlaðra.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is