Mánudagur 17.11.2008 - 09:42 - Ummæli ()

Jordan kann að halda Pete við efnið

829868721.jpgJordan hefur harðneitað því að erfiðleikar séu í hjónabandi hennar við Peter Andre og segist vita nákvæmlega hvernig eigi að halda honum við efnið.

Í raunveruleikaþættinum um líf þeirra hjóna hefur það vakið athygli að Jordan virðist alltaf hafna honum þegar hann reynir að koma henni til, en hún segir að það sé góð ástæða fyrir því.

„Hann er karlmaður og hann mun alltaf vilja meira kynlíf en hann fær,“ sagði hún í viðtali við The Sun.

„Pete fær það kannski ekki oft. . . en þegar hann gerir það þá er það þess virði.“

Jordan finnst einnig fáránlegt að fólk dragi þær ályktanir að hún og Pete séu að hætta saman bara af því að hún var ljósmynduð án hans úti á djamminu.

„Bara af því að ég fór tvisvar út að skemmta mér með stelpunum þá er búið til eitthvað risadrama í kringum það og sagt að við séum hætt saman,“ sagði Jordan.

„Við Pete hlæjum að þessu. Ef við brosum framan í myndavélarnar segir fólk að við séum með sýndamennsku.“

„En ef við erum ekki saman þá heldur fólk að við séum að skilja.“

„Ég heyri svo margt um mig í pressunni. Í síðustu viku sagði eitt tímarit að ég hefði áhyggjur af því að andlitið á mér virtist frosið.“

„Miðað við alla peningana sem ég hef eytt í Botox þá hefði ég meiri áhyggjur ef að það virtist ekki frosið, ég yrði brjáluð.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is