Davíð Oddsson: Seðlabankinn varaði við hættulegri stöðu bankanna þegar í febrúar
Davíð Oddsson seðlabankastjóri sagði á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs í dag að Seðlabankanum hafi verið vel ljóst hversu alvarleg staðan í íslensku fjármálalífinu var löngu áður en kreppan skall á og hafi reynt að vara við stöðunni. Meðal annars hafi bankinn í febrúar kynnt ráðamönnum þjóðarinnar skýrslu frá breskum matsfyrirtækjum þar sem miklum áhyggjum var lýst af vexti bankanna.
Þetta kemur fram á fréttavef Ríkisútvarpsins. Hluti ræðu Davíðs var sendur út í beinni sendingu á rás eitt.
Davíð sagði að Seðlabankinn hefði bent stjórnvöldum á að íslenska bankakerfið væri í mikilli hættu og bankarnir hefðu þanist út skiplagslítið og ógætilega í trausti þess að aðgengi að lánsfé væri áfram gott.
Þá kom einnig fram í ræðu Davíðs að það myndi ekki ekki hafa hjálpað Kaupþingi að flytja úr landi. Það myndi hins vegar hafa hjálpað hinum íslensku bönkunum því þá hefði aukist tiltrú erlendra lánadrottna að íslensk stjórnvöld réðu við að koma þeim til aðstoðar í neyð.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is