Þriðjudagur 18.11.2008 - 18:37 - Ummæli ()

Davíð varaði ekki viðskiptaráðherra við erfiðri stöðu bankanna í febrúar

bjorgvin-gsig2.jpgBjörgvin G. Sigurðsson, ráðherra bankamála, segist ekki kannast við að Davíð Oddsson seðlabankastjóri hafi varað ráðamenn við erfiðri stöðu bankanna á fundi strax í febrúar, eins og Davíð hélt fram í ræðu á fundi Viðskiptaráðs í morgun.

Björgvin segir í viðtali við fréttastofu RÚV í dag, að bankastjórn Seðlabanka Íslands hafi ekki komið þessum áhyggjum á framfæri við sig sem viðskiptaráðherra, hvorki í febrúar né síðar. Í  fjármálastöðugleikaskýrslu seðlabankans frá því í maí á þessu ári hafi verið sagt að fjármálakerfið væri í meginatriðum traust og að samstarf Seðlabanka og Fjármálaeftirlits hafi eflst mjög á síðustu árum, öfugt við það sem Davíð sagði.

Björgvin undraðist jafnframt framgöngu Davíðs vegna bankahrunsins og sagði koma mjög á óvart hve harkalega hann gengi fram í því að varpa, að því er virðist, ábyrgð yfir á alla aðra en Seðlabanka Íslands.

Geir Haarde forsætisráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra segja að fundur hafi verið haldinn með seðlabankastjóra í febrúar. Árni segir hins vegar að þar hafi ekkert nýtt komið fram.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is