Brýnast að efnahagshöggið lendi jafnt á fólki – einn hópur beri ekki þyngri byrðar en annar
Helgi Gunnlaugsson, prófessor við félagsfræðiskor Háskóla Íslands, segir að í þeim vanda sem nú steðjar að Íslendingum sé mikilvægast að höggið lendi jafnt á fólki.
Þetta er haft eftir Helga í Fréttablaðinu í dag.
Þar segir hann aðalverkefni Verkalýðshreyfingarinnar og annarra hagsmunaaðila, auk stjórnvalda, að vinna að jöfnuði fyrst og fremst, þar sem nú virðist stefna í mikla félagslega misskiptingu. Það sé aftur ávísun á gríðarlegan, félagslegan óstöðugleika og meiri eymd.
Helgi segir að í ljósi fámennis á Íslandi sé jöfnuður sérstaklega mikilvægur fyrir utan að hér sé hefð fyrir ójöfnuði. Meiri ójöfnuður skapi stórhættu, en þar vísar Helgi til þess ójöfnuðar sem er yfirvofandi vegna atvinnuleysis og samdráttar. Nú sé mikilvægt að
höggið lendi jafnt á fólki og að einn hópur beri ekki þyngri byrðar en annar.
Hann óttast að ungt fólk, jafnvel með ung börn, sem nýlega hafi fest kaup á húsnæði, verði látið eitt og sér bera hitann og þungann af kreppunni.
Þá segir hann samanburðinn við laun í öðrum löndum reynast Íslendingum erfiður og því mjög mikilvægt að samanburðurinn við kjör annarra hér heima reynist fólki ekki jafn þungbær.
Forseti ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson, tekur undir orð Helga og segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru fyrir helgi fyrsta skrefið.
Nú sé langbrýnast að koma í veg fyrir aukið atvinnuleysi, meðal annars með vaxtalækkunum, þar sem háir vextir séu að drepa fyrirtækin og valda skelfilegu atvinnuleysi.
Ingunn S. Þorsteinsdóttir hagfræðingur segir að vegna veikingar á gengi krónunnar sé samanburður á launum Íslendinga við það sem gerist annars staðar, til dæmis á Norðurlöndum, okkur mjög óhagstæður.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is