Miðvikudagur 19.11.2008 - 09:18 - Ummæli ()

Glitnir lánaði félagi 25 milljarða til kaupa í FL Group. Lítil eða engin veð. Óvenjuleg afgreiðsla

glitnir-flgroup.jpgEinkennileg viðskipti með hlutabréf í FL Group (nú Stoðum) eru til umfjöllunar í DV í dag. Fram kemur að eignarhaldsfélagið Stím ehf., sem Jakob Valgeir Flosason útgerðarmaður í Bolungarvík er skráður fyrir, fékk 25 milljarða að láni í gamla Glitni fyrir ári síðan og fjárfesti í FL Group rétt áður en félagið skilaði mesta tapi Íslandssögunnar.

DV segir að lítil sem engin veð hafi verið fyrir láninu. Afgreiðsla þess hafi ekki farið venjulegar boðleiðir innan bankans.

Útgerðamaðurinn Jakob Valgeir Flosason vildi ekki tjá sig um málið þegar DV hafði samband við hann.

Samkvæmt heimildum DV gjaldféll lánið í síðasta mánuði.

Fjármálaeftirlitið vill ekki upplýsa hvort mál þetta sé til rannsóknar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is