Miðvikudagur 19.11.2008 - 09:12 - Ummæli ()

Katy Perry: Ég er ekki með plastbrjóst

83596466.jpgKaty Perry er ekki ánægð með að fólk skuli halda því fram að hún hafi farið í brjóstaaðgerð.

Söngkonan sem sló í gegn með laginu I Kissed A Girl segir að brjóstin séu ekta og að hún myndi aldrei eyða peningum í plastbrjóst.

„Hvernig getur fólk haldið að þau séu gervi?“ sagði Katy við breska slúðurblaðið The Sun.

„Sjáið þau bara. Spyrjið þau! Þau eru eins ekta og hægt er að vera.“

„Hundrað pósent ófölsuð og ósnert. . . eða svona nokkurn veginn.“

„Ég myndi aldrei eyða peningum í gervibrjóst.“

„Kannski skó og kannski tösku. En plastbrjóst – engan veginn!“

„Ég er ekki á móti því að fólk fari í lýtaaðgerðir. Það hefur ekki skaðað neinn að láta laga hitt og þetta.“

„Eftir fimmtíu ár á ég kannski eftir að líta út eins og síamsköttur í vindgöngum, en enn sem komið er hef ég ekki látið gera neitt og barmurinn er alvöru.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is