Seðlabankinn hefði getað komið í veg fyrir Icesave-deiluna og gríðarlegan kostnað Íslendinga
Jón Steinsson, hagfræðingur og lektor við Columbia-háskóla, segir í Fréttablaðinu í dag að Seðlabankinn hefði getað beitt sér fyrir færslu Icesave-reikninga Landsbankans í erlend dótturfélög.
Þar með hefði verið komið í veg fyrir Icesave-deiluna og hina kostnaðarsömu niðurstöðu sem fékkst með samningaviðræðum Íslendinga og Evrópusambandsins á sunnudag.
Jón gagnrýndi Seðlabankann fyrir röð mistaka eftir hrun bankakerfisins í Fréttablaðinu sl. mánudag og segir nú að Seðlabankinn hefði getað notað heimildir um bindiskyldu til að koma Icesave í erlend dótturfélög og komið þannig í veg fyrir hin miklu vandræði okkar Íslendinga.
Hann varði þó um leið vaxtastefnu bankans eins og hann gerði oft meðan gagnrýnisraddir vaxtastefnunnar voru háværar.
Jón sagði um samkomulagið í Brussel um helgina að í því fælist góð niðurstaða fyrir Íslendinga.
Þarna hafi verið um að ræða hina augljósu lausn, hugmyndir Breta um að við borguðum meira og hugmyndir Íslendinga um að við borguðum minna hafi verið ósanngjarnar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is