Vigdís í viðtali við stærsta dagblað Spánar: Kreppan hefur svert mannorð okkar
„Íslendingar liðu hungur með sjálfsvirðingu en þessi kreppa hefur svert mannorð okkar“ segir Vigdís Finnbogadóttir í baksíðuviðtali við El País, stærsta dagblað Spánar í dag.
Ríkisútvarpið skýrir frá þessu.
„Þetta hefur verið stóráfall. Sannkallaður harmleikur fyrir okkur Íslendinga sem höfum gengið gegnum fátækt og hungur án þess að tapa sjálfsvirðingunni. En nú vegna þess að nokkra banka hefur orðið að þjóðnýta fyrir að leika sér með fjármuni, finnst okkur mannorð okkar svert meðal annarra þjóða“, hefur blaðið eftir henni.
Vigdís er sögð segja þetta hæglega en án þess að leyna þeirri skapraun sem þessir atburðir hafi valdið henni. El País kveður hana tala af rósemd sem geri henni kleift að biðjast afsökunar á því sem landar hennar ganga í gegnum til jafns við sparifjáreigendur þá í Bretlandi og Hollandi sem lögðu traust sitt á Icesave-reikninga Landsbankans.
Blaðið segir Vigdísi vilja endurreisa orðstír Íslendinga og hefur orðrétt eftir henni: „Ísland er opið og heiðarlegt og við finnum til samkenndar með öðrum“. El País segir þessa kreppu hafa spillt því starfi sem hún hafi unnið til að efla góðan orðstír Íslands. „Hér er ekki bara um starf mitt að ræða, að sjálfsögðu, en það þarf að byrja endurreisnina uppá nýtt.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is