Ingibjörg Sólrún: Engar kosningar í vor. Forgangsröðin skýr; fyrst fólkið í landinu – svo flokkurinn
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar, sagði á flokksstjórnarfundi flokksins í dag að nú væri mikilvægara en nokkru sinni að stjórnmálaöfl í landinu settu eigin hagsmuni til hliðar.
Hún viðurkenndi í ræðu sinni að flokknum hentaði að mörgu leyti að nú yrði gengið til kosninga, enda hafi flokkurinn meðan hann var í stjórnarandstöðu margítrekað það sem úrskeiðis fór í stjórn efnahagsmála síðustu kjörtímabil. Þá nyti Samfylkingin mikils stuðnings þjóðarinnar samkvæmt skoðanakönnunum.
Það gæti þó ekki stjórnað afstöðu flokksins til kosninga í vor sem væru ekki tímabærar. Forgangsröðin væri skýr í hennar huga; fyrst kæmi fólkið, svo kæmi flokkurinn.
Þar saqðist hún vera að tala um fólkið sem væri að missa vinnuna, þá sem væru í greiðsluerfiðleikum og þá sem sæju fram á að missa fyrirtæki sín í gjaldþrot.
Hún sagði mikilvægast að koma á hæfri bankastarfsemi og tryggja að gjaldeyrismarkaður og fjármálakerfi virkuðu svo hjól atvinnulífsins gætu farið að snúast.
Tryggja þyrfti að fjárlög yrðu samþykkt sem tryggðu góða grunnþjónustu og stuðning við þá sem minnst hefðu milli handanna, sem yrði mjög erfitt vegna tekjufallsins í þjóðfélaginu, og þar með ríkissjóðs.
Þess vegna væri mikilvægt að framkvæma þá efnahagsáætlun, sem við sjálf hefðum átt þátt í að senda til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Verkefni næstu vikna og mánuða væri svo að koma almenningi og öðrum stjórnmálaflokkum í skilning um að Íslendingar verði að sækja um aðild að ESB og leggja krónunni en taka upp evru.
Ingibjörg kom einnig inn á ástæður þess að hryðjuverkalögum hefði verið beitt á Íslendinga og hélt því fram að algjör óvissa ríkti um ástæður Bretanna.
Hrun hefði hreint ekki blasað við í bresku samfélagi vegna Icesave-reikninganna og það gæfi færi á málssókn gegn breskum stjórnvöldum.
Þá gerði Ingibjörg mótmælafundi undanfarinna vikna að umræðuefni og sagaðist sjálf myndu taka þátt í þeim væri hún ekki í ríkisstjórninni.
Mótmæli væru tákn um lífskraft fólksins í landinu og og fólk í friðsamlegum mótmælum ættu hrós skilið.
Nú væri hinsvegar ekki tími til að gefa sig kosningabaráttunni á vald og þeim yfirboðum sem henni fylgdu, það myndi draga athyglina frá þeim verkum sem brýnast væri að vinna. Lánafyrirgreiðsla IMF og annarra þjóða hafi markað þáttaskil og ekki væri rétt að búið væri að skuldsetja næstu kynslóðir.
Mikil stemnning ríkir á fundinum og undir ræðu formannsins hvað ítrekað við dynjandi lófatak.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is