Laugardagur 22.11.2008 - 15:50 - Ummæli ()

Mikill hiti í mótmælafundi dagsins: „Ef ráðamenn ekki hypja sig munum við bera þá út“

austurvollurmotmaeli1.jpgStigvaxandi reiði og hiti hafa hlaupið í mómælafundi, sem hafa verið haldnir á Austurvelli undanfarnar vikur.
Þúsundir manna voru samankomnir á Austurvelli í dag en það var Katrín Oddsdóttir laganemi sem hóf fundinn.

Hún vandaði ekki stjórnvöldum kveðjurnar.

Katrín beindi orðum sínum til Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar og sagði þeim að þjóðin léti ekki lengur bjóða sér að mannréttindi hennar væru þverbrotin af ríkisstjórninni.

Hún sagði Geir Haarde hafa gefið yfirlýsingu fyrir örfáum dögum um að við létum ekki kúga okkur. Örfáum dögum síðar hafi hann svo handsalað samning sem geri okkur að einni skuldsettustu þjóð heims.

Hann hefði getað verið nákvæmari og sagt: Við látum ekki kúga okkur, en það eru góðar líkur á að við látum kúga ykkur, íslensku þjóðina.

Katrín beindi þeirri spurningu til Geirs Haarde og Ingibjörgu Sólrúnar hvernig þau dirfðust að segja þjóðinni að kosningar væru útilokaðar meðan fólkið í landinu mætti þúsundum saman á Austurvöll í hverri viku og krefðist kosninga.

Þá sagði hún ákvörðun Geirs um að ráða norskan hernaðarsérfræðing til að ráðleggja sér hvernig halda mætti upplýsingum frá fjölmiðlum og þar með þjóðinni jafngilda stríðsyfirlýsingu.

Katrín sagði ráðherrana hafa svipt þjóðina þeim grundvallarrétti að geta farið með mál sitt fyrir dómstóla, þjóðin hafi ekki fengið og muni aldrei fá tækifæri til að láta reyna á sínar hliðar.

Konur og börn myndu líða fyrir óstjórn landsins þó það hafi sannarlega ekki verið konur sem komu þjóðinni á kaldan klaka. Konur myndu ekki láta útiloka sig frá stjórnstörfum landsins í framtíðinni.

Katrín krafðist tafarlausrar afsagnar ráðamanna og sagði að ef ekki yrði orðið við því innan viku myndi fólk flykkjast í viðkomandi stofnanir og bera menn út.

Mikil fagnaðarlæti brutust ítrekað út meðal fundargesta meðan Katrín talaði.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is