Þriðjudagur 25.11.2008 - 17:53 - Ummæli ()

G. Pétur biður þjóðina afsökunar á að hafa ekki birt viðtalið við Geir á sínum tíma

g-petur.jpgG. Pétur Matthíasson, fyrrverandi fréttamaður á Sjónvarpinu, biður þjóðina afsökunar á því að hafa ekki birt umtalað viðtal sitt við Geir H Haarde forsætisráðherra á sínum tíma.

Hann hefur skilað Ríkisúvarpinu spólu með viðtalinu sem hann hafði birt áður óséð brot úr á bloggsíðu sinni.

G. Pétur birtir í dag bréf sitt til Páls Magnússonar útvarpsstjóra. Páll hafði gert alvarlegar athugasemdir við notkun Péturs á viðtalinu sem hann tók 2007 og krafist spólunnar og afsökunarbeiðni frá Pétri, sem nú er upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.

„Í myndbandið vantar bút sem ég klippti burt þar sem forsætisráðherra bandar hendinni að myndavélinni og vill stöðva upptökuna. Nú sé ég að sá bútur hefði átt að fylgja með,“ segir Pétur m.a. í bréfi sínu.

Ennfremur segir í bréfinu m.a.:

„Myndbandið sýnir óviðeigandi viðbrögð forsætisráðherra, sem ekki var sæmandi manni í hans stöðu, við knýjandi spurningum sem áttu erindi í almenna og lýðræðislega umræðu á þeim tíma og töldust hluti af málefnalegu aðhaldi fjölmiðla gagnvart stjórnvöldum.

„Myndbandið er innlegg í þá lýðræðislegu umræðu sem nú á sér stað um endurskoðun og uppbyggingu íslensks samfélags. Ekki síst um það hvernig fjölmiðlar brugðust hlutverki sínu í gagnrýninni umfjöllun á þá þróun sem hér varð og skort á viðbrögðum stjórnvalda við aðstæðum.

„Það sýnir líka mistök mín sem fjölmiðlamanns, röng vinnubrögð og röng viðbrögð við háttsemi forsætisráðherra. Viðtalið átti ég að birta. Það hefði fréttastofa Sjónvarpsins einnig átt að gera í öðrum tilfellum þar sem viðmælendur voru í sambærilegri stöðu og sýndu svipuð viðbrögð. Má þar m.a. nefna aðra ráðherra.

„Ég bið þjóðina afsökunar á því að hafa ekki birt þetta viðtal á sínum tíma. Ég biðst líka afsökunar opinberlega hafi ég á einhvern hátt orðið þess valdandi að minn gamli vinnustaður, Ríkiútvarpið hafi beðið álitshnekki. Páll Magnússon nefnir einmitt í bréfinu sem sent var starfsmönnum að þetta hafi “með að gera þau heilindi og hreinskiptni sem Ríkisútvarpið þarf að sýna í samskiptum við fólk og getur stefnt í voða því trausti og trúverðugleika sem frétta – og dagskrárgerðarmenn RÚV þurfa að njóta í samfélaginu, – og þannig torveldað okkar fólki að rækja skyldustörf sín.” Um mikilvægi þessa er ég Páli Magnússyni hjartanlega sammála. Skylda starfsfólks Ríkisútvarpsins er að greina satt og rétt frá og umrætt myndband sýnir ekki annað en það sem gerðist.“

Sjá bréf G. Péturs í heild á vefsíðu hans.

Viðtalið umdeilda er hér að neðan:

[youtube=www.youtube.com/watch?v=E3zqtGWEc8U]


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is