Þriðjudagur 25.11.2008 - 16:33 - Ummæli ()

Geir Haarde: Engin lán á boðstólum ef kosið verður nú

geir10frettir2.jpgÞað er ekki langt í það að krónan verði sett á flot, segir Geir Haarde forsætisráðherra en vill ekki tímasetja það nánar. Hann  ræðir í dag um lánamál við forsætisráðherra hinna Norðurlanna, að því er kom fram í hádegisfréttum RÚV.

Geir sagði glapræði að stofna til kosninga á næstu mánuðum um hávetur.

„Við erum með fangið fullt af verkefnum sem þarf að klára. Fleyting krónunnar er bara eitt atriði af þeim. Við erum jafnframt með samkomulag við okkar nágrannalönd og ég er að hringja í alla kollega mína á Norðurlöndum í dag út af þessum lánamálum og það er alveg ljóst að ef við getum ekki klárað það sem upp á okkur stendur varðandi samkomulagið við AGS, sem kemur til endurskoðunar í febrúar, þá verða engin lán á boðstólum frá þeim sem boðist hafa til að lána okkur.“

„Þetta hangir allt saman,“ sagði Geir. „Ef við stefnum hér í pólitíska óvissu, sem við myndum gera ef við myndum rjúfa þing og boða til kosninga, þá verður ekkert af þessu.“

Forsætisráðherra sagði borgarafundinn í gær ekki hafa gert neitt útslagið um mál en stjórnvöld hafi fengið þar gagnlegar upplýsingar og skýr skilaboð. Þar kom fram mikill þrýstingur á stjórnvöld að ráðast strax í breytingar á stjórn Seðlabankans. Að loknum ríkisstjórnarfundinum sagðist fjármálaráðherra aðspurður treysta seðlabankastjórninni fyrir verkefnum bankans, samkvæmt frétt RÚV.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is