Þriðjudagur 25.11.2008 - 10:47 - Ummæli ()

Tom Cruise hrifinn af Paparazzi-ljósmyndum af Suri

81326307.jpgFlestum foreldrum í Hollywood er ekki vel við það þegar börnin þeirra verða paparazzi-ljósmyndurum að bráð.

Tom Cruise virðist hins vegar ekki kippa sér mikið upp við það að tveggja ára dóttir hans Suri sé ljósmynduð hvert sem hún fer.

„Ég verð að segja að sumar af þessum paparazzi-ljósmyndum af Suri eru frábærar,“ sagði hann í viðtali við ástralska tímaritið Grazia.

„Sem foreldri reynir maður að vernda börnin sín, en Suri er mjög opin og hlýleg og hún veifar til ókunnugra úti á götu. Hún er svo hamingjusöm og skemmtileg lítil stelpa.“

„Hlutirnir eru svo sannarlega öðruvísi þessa dagana hvað varðar fjölmiðla, en fólk hefur verið mjög almennilegt við okkur og gefið okkur rými svo að ég ætla ekki að vera erfiður.“

Suri sést oft á vappi í dýrri merkjavöru, en Tom segir að það sé hvorki honum né móður hennar Katie Holmes að kenna þar sem Suri velji fötin sín sjálf.75588496.jpg

„Suri er mjög ákveðin alveg eins og móðir hennar,“ sagði Tom.

„Ég klæði hana í buxur, en ef ég lít af henni eitt augnablik er hún komin úr þeim og búin að klæða sig í kjól í staðinn.“

„Kate sýndi henni flotta, gyllta strigaskó og hún sagði: Þeir eru flottir, mamma, en þetta eru strákaskór.“

„Svo að hún er mikil stelpustelpa.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is