Þúsundir manna sæta nú rannsókn endurskoðenda vegna bankahrunsins
Sérstök teymi endurskoðenda voru skipuð í vikunni til að rannsaka viðskipti inni í bönkunum eftir hrunið. Þau teymi starfa til hliðar við skilanefndir bankanna, segir í Fréttablaðinu.
Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, segir teymin hafa umboð til að skoða allt sem tengist starfsmönnum, fyrrverandi eigendum, stjórnarmönnum og innherjum. Gríðarlega margir sæti rannsókn nú þegar búið sé að skilgreina alla þá sem gætu hafa verið með óeðlilega aðkomu að málum að einhverju leyti.
Endurskoðendateymin hafi það hlutverk að rannsaka allar leiðir sem hugsanlegt sé að menn hafi notað til að aðhafast eitthvað óeðlilegt innan bankanna.
Nú sé samkeyrt í tölvuforritum gríðarlegt magn af ýmsum skilgreiningum og upplýsingum aftur í tímann, en enn séu engar vísbendingar um neitt óeðlilegt.
Árni segir þessar aðgerðir ekki síst gerðar vegna starfsmanna bankanna, svo þeir liggi ekki undir órökstuddum grun um misferli.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is