Föstudagur 28.11.2008 - 20:04 - Ummæli ()

Gjaldeyrishöftin harðlega gagnrýnd

kronur2.jpgNý lög sem Alþingi samþykkti í nótt sem leið um ströng höft á gjaldeyrisviðskipti og fjármagnsflutninga hafa mætt hörðum viðbrögðum hagsmunaaðila í dag.

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu sagði í samtali við Stöð 2 í kvöld að að verið væri að færa íslenskt atvinnulíf nokkra áratugi aftur í tímann.

Afar lítið virðist vera til af gjaldeyri í landinu. Andrés sagði einnig í samtali við RÚV að fyrirtæki í fatainnflutningi hafi komið að lokuðum dyrum í dag þegar þau leituðu eftir bankaábyrgð til að geta flutt inn vörur.

Finnur Árnason, forstjóri Haga, sagði í viðtali í kvöldfréttum Sjónvarps að ríkisstjórnin væri nú búin að lögleiða vantraust sitt á krónuna sem gjaldmiðil og veltir fyrir sér hvernig aðrir eiga að fá trú á krónuna í kjölfarið. Hann óttast að ef krónan veikist mikið meira þá leggist innflutningsverslun nánast af.

Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans segir þetta vera slæman kost en þann eina sem sé í núverandi stöðu. „Með þessum hætti komumst við hjá því að lenda í enn frekari vandræðum vegna mikils útflæðis á gjaldeyri og falls á krónunni sem að mundi leiða til þess að ísland yrði fyrir enn meiri álitshnekki erlendis en orðið hefur.“

Hann segir Seðlabankann ásamt ráðgjöfum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins telja höftin nauðsynleg og að þau verði afnumin í áföngum.

Arnór segir að verulegur afgangur sem myndist á vöru og þjónustuviðskipti og að lokum einnig á viðskiptajöfnuði, hugsanlega fyrir árið 2010. Þennan afgang megi nota til að losa erlenda aðila smátt og smátt úr sínum stöðum án þess að gengi krónunnar veikist verulega.

Geir H. Haarde forsætisráðherra telur gagnrýnina á lögin of harkalega. Gjaldeyrishöftin séu „skammtímaðgerð til að sporna við kollsteypu í gengismálum,“ sem fyirtækin hafi áreiðanlega skilning á.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is