Ingibjörg Sólrún í DV: Útilokar ekki vorkosningar. Segir kosningar nú þó hættuspil
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, útilokar ekki kosningar í vor. „Ég er ekki á móti því að það verði kosið áður en þetta kjörtímabil er á enda,“ er haft eftir henni í viðtali í DV í dag.
Á vef blaðsins er vitnað í viðtalið þar sem Ingibjörg Sólrún segir stemmninguna í Samfylkingunni vera góða. Það segi sig sjálft að í svona erfiðum aðstæðum í samfélaginu, þegar mikill þrýstingur sé á stjórnvöld og mikil krafa um að það eigi að kjósa, hafi það áhrif inn í Samfylkinguna. Samfylkingin er næmur flokkur sem hlustar og vill gjarnan svara kalli tímans. Hún segist sjálf alveg sannfærð um að kosningar við núverandi aðstæður væru talsvert hættuspil, en útilokar þó ekki að gengið verði til kosninga.
„Ef þetta er spurning um uppgjör við fortíðina – er hagstætt fyrir Samfylkinguna að kjósa núna. Flokkurinn mælist vel í könnunum, við berum ekki ábyrgð á þeim pólitísku ákvörðunum undanfarinna ára sem skópu íslenskt fjármálakerfi heldur Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur. Það eru því kjöraðstæður fyrir okkur að kosið sé nú, miðað við þessa hluti. Að auki eru fram undan gríðarlega erfiðar pólitískar ákvarðanir sem þægilegra væri að koma sér undan,“ segir hún.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is