Föstudagur 28.11.2008 - 19:29 - Ummæli ()

Ríki og borg ræða um að halda byggingu Tónlistarhússins áfram

tonlistarhus-bygging1.jpgFramkvæmdir við Tónlistarhúsið við Reykjavíkurhöfn stöðvast í næstu viku ef samkomulag næst ekki um framhaldið milli ríkis og borgar.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að það megi ekki gerast að Tónlistarhúsið verði gapandi sár í miðborginni. Hún sagði í viðtali í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að hún myndir hitta borgarstjóra í næstu viku til viðræðna um hvernig ríki og borg gætu haldið áfram með verkið.

Portus Group getur ekki haldið verkefninu áfram og hefur rent að fá samstarfsaðilann, Austurhöfn, sem er í eigu ríkisins og borgarinnar, til að yfirtaka það.

Menntamálaráðherra segir það pólitískan vilja ríkisins og sér skiljist einnig af hálfu borgarinnar til að halda áfram með byggingu hússins þó ekki sé ljóst með hvaða hætti það verður gert. Um 200 manns starfa við byggingu hússins.

Þorgerður segir verkefnið mikilvægt til að halda uppi atvinnustigi en líka fyrir menninguna, tónlistina í landinu og ferðaþjónustuna. „Þetta er komið í farveg, framkvæmdir eru hafnar og það væru mikil mistök að láta þetta verkefni dankast,“ sagði Þorgerður í fréttum Stöðvar 2.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is