Hópur áhugasamra einstaklinga vill kaupa Moggann
Hópur áhugasamra einstaklinga undirbýr að gera tilboð í Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, að því er segir frétt blaðsins í dag.
Fyrirtækið er með erfiða lausafjárstöðu. Unnið er í þeim málum um helgina ásamt endurskipulagningu efnahagsreiknings félagsins í samstarfi við viðskiptabanka fyrirtækisins, Glitni.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur verið lögð áhersla á það í hópnum að miðað sé við að enginn einn hluthafi sé með ráðandi hlut í útgáfunni. Í þessum hópi eru m.a. stjórnendur og starfsmenn Árvakurs og ýmsir fjárfestar. Þá er talið líklegt að í þessum hópi séu einnig eigendur útgáfufélagsins Valtýs sem lengi hefur verið viðriðinn útgáfu blaðsins.
Einar Sigurðsson leggur áherslu á að staða Morgunblaðsins sem fjölmiðils sé að styrkjast. Áskrifendum hafi fjölgað og þeir séu nú nánast jafnmargir og fyrir ári. Þá hafi lestur blaðsins aukist. „Það er augljóst að í kreppunni leitar fólk í þá fjölmiðla sem það treystir. Þess vegna tel ég það mjög mikilvægt verkefni að tryggja þennan rekstur til framtíðar,“ segir Einar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is