Fimmtudagur 04.12.2008 - 07:19 - Ummæli ()

Ástþór borinn út af borgarafundi

Þrír fílefldir karlmenn hentu Ástþóri Magnússyni á dyr og út á götu úr gamla skrifstofuhúsnæði Byggingarfulltrúans í Reykjavík í gær við upphaf fundar um skipulag Opins Borgarafundar í Háskólabíói. Þetta segir í bréfi sem Eyjunni barst frá Þór á lydveldi.is.

Aðrir sem voru á fundinum og rita í athugasemdir hér að neðan bera lýsinguna í bréfinu til baka. Einn þeirra, Kristófer, segir: „Ég var nú staddur á þessum fundi sem gestur og var nú vitni að virku lýðræði,það var kosið um hvort Ástþór ætti að vera eður ei og 99% fundargesta vildu manninn út… Fundinn hefði ég ekki setið ef  Ástþór hefði verið kyrrt, því að eins og allir heilvita menn og konur vita að ef Ástþór yrði tengdur við þetta þá er trúverðuleikin farinn. PS þessir fílefldu karlmenn fóru allveg framhjá mér.“

Í bréfinu segir: „Strax og Ástþór kom inn um dyrnar í Borgartúni 3, var honum mætt af Gunnari Sigurðssyni leikstjóra með orðunum „Ástþór viltu fara út og finna þér einhvern annan vettvang“.  Aðspurður hvort ekki  væri rétt að ræða það á fundinum svaraði Gunnar að þess væri  engin þörf.  Gunnar sagðist vera með húsnæðið á leigu prívat og persónulega, ekki þetta fólk sem þarna væri mætt.

Eiríkur Stefánsson fyrrum verkalýðsforingi og pistilhöfundur á Útvarpi Sögu stórhneykslaðist á eineltinu og sagði í miklum  reiðilestri yfir fundarmönnum að samtökin væru á engan hátt  sjálfum sér samkvæm. Hér væri verið að krefjast þess að stjórnvöld hefðu allt uppá borðinu, samtökin fengju  áheyrnarfulltrúa í nefndir og á ríkisstjórnarfundi, en samtökin sjálf störfuðu á leynifundum og rækju á dyr þá sem hefðu áhuga á þátttöku í starfinu eða sitja fundi sem áheyrnarfulltrúar.

Ástþór óskaði að sitja fundinn sem áheyrnarfulltrúi og þegar því  var synjað bað hann um skriflega brottvísun en því var einnig  synjað. Stuttu síðar kom aðvífandi þrír menn sem tóku undir  handleggi Ástþórs og báru hann þannig út á götu.

Þetta er nokkuð á skjön við yfirlýst markmið á vefsíðunni  borgarafundur.org en þar segir „Opinn borgarafundur er  breiðfylking fólks sem á það sameiginlegt að vera umhugað um  lýðræðislegt stjórnarfar á Íslandi. Félagsskapurinn er ekki  flokkspólítískur og er opinn öllum sem áhuga hafa.“

Þarna er siglt undir fölsku flaggi því þessum samtökunum er stjórnað af fámennri klíku og eru alls ekki opin öllum.

Í fjölmiðlum hefur verið að koma fram fólk sem kvartar yfir því að komast ekki að sem frummælendur á mótmælafundum. Í kjölfarið velti Ástþór því upp á bloggsíðunni lydveldi.blog.is hvort verið  væri að misnota vettvang mótmælenda og nauðsyn þess að innleiða  lýðræðislegri leiðir við val á ræðumönnum og spyrjendum. Þar segir m.a.:

„Í Háskólabíó varð ég vitni að því að vörubílstjóra var meinað að  bera upp spurningu. Fólk í kringum þennan mann tjáði mér að einhversskonar fyrirmæli hefðu verið gefin út að hleypa honum ekki í loftið. Þar sem ég hafði skráð mig fljótlega eftir fyrsta fundinn á póstlista hjá borgarfundur.org, hef ég fengið sendan póst og hvatningar að kynna fundina. Einnig fundarboð á skipulagsfund.

Ég mætti á slíkan fund tveimur dögum eftir stóra fundinn í  háskólabíó. Þar var borin upp sú tillaga (tek það fram að þessi tillagan var ekki frá mér né tengist mér á nokkurn hátt) að skipta út fundarstjórum með reglulegu millibili. Ég hlustaði á þetta og lagði lítið til málanna annað en ef ætti að skipta út fundarstjóranum væri ekki úr vegi að kona yrði valin næst.

Tillaga og umræður um breytingar á fundarstjórn var kveðin í kútinn eftir að hinn ágæti leikstjóri borgarafundanna sagðist ekki myndi mæta á næsta fund ef þetta ætti að þróast í einhver formleg fundarsköp.

Ekki veit ég hvort það tengist þessari umræðu en ég var snarlega tekinn af póstlista borgarafundarins og fékk ekki sent næsta fundarboð. Frétti frá öðrum að sá fundur var haldinn 1. desember.

Ég er ekki alveg að átta mig á því hvað er í gangi við þessi mótmæli og borgarafundi. Hversvegna ekki er staðið að þessu með hlutdrægum og lýðræðislegum hætti. Ég hef tekið eftir því að á meðan sumum frummælenda er hafnað af skipuleggjendum, hafa aðrir
margsinnis flutt ávörp. Svo ég gerði smá könnun á þeim frummælendum sem hafa komið fram til að kanna hvort einhverjar pólitískar ástæður kynnu að liggja hér að baki.

Könnun mín virðist því miður leiða í ljós að verið sé að misnota vettvang mótmælenda. Síðastliðinn mánuð hafa 70,6% frummælenda á Austurvelli og Arnarhóli tengst Vinstri Grænum. 11,8% tengast öðrum stjórnmálahreyfingum en hjá 17,6% finn ég ekki augljósar
tengingar við stjórnmálaflokka. Svipað mynstur er á borgarafundunum í Iðnó og Háskólabíó, þar er meirihlutinn eða 53% sem tengjast Vinstri Grænum.”

Opin borgarfundur var góð hugmynd en því miður virðast annarleg sjónarmið ráða för sem draga þetta annars verðuga verkefni í ræsið. Ljóst er að grandvaralausir fundargestir eru blekktir með leikstýringu.

Í efnahagshruni og kreppu eins og nú er komin upp á Íslandi getur myndast hætta á að öfgaöfl nái undirtökum. Hitler komst þannig  til valda í Þýzkalandi á sínum tíma. Nú komið í ljós að stjórnarhættir forráðamanna Opins Borgarafundar eiga meira skylt
með aðferðafræði fasista en lýðræði.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is