Boy George fundinn sekur
Boy George, réttu nafni George O’Dowd, horfir nú fram á fangelsisdóm fyrir að hafa haldið manni föngnum á heimili sínu með því að handjárna hann við rúmið sitt.
Norðmaðurinn Audun Carlsen er fylgdarþjónustumaður sem Boy George hafði þekkt í einhvern tíma, en þeir kynntust á tenglsanets-síðu fyrir samkynhneigða karlmenn.
Mennirnir hittust og Boy keypti þjónustu af Audun, en síðan grunaði hann Audun um að hafa átt við tölvuna sína og tekið þaðan ljósmyndir.
Hann bauð því norðmanninum heim til sín öðru sinni undir því yfirskini að fá að taka af honum nektarmyndir.
Þegar Audun mætti hins vegar á staðinn sátu Boy og annar karlmaður fyrir honum og réðust á hann.
Samkvæmt Audun þá öskraði George á hann að hann myndi fá það sem hann ætti skilið.
Audun var síðan dreginn eftir gólfinu og járnaður við vegg.
Stuttu síðar hvarf hinn karlmaðurinn á braut, en George dró fram kassa með kynlífsleikföngum og leðurólum.
Audun tókst að losa sig frá veggnum og hljóp til dyra, en George veitti honum eftirför og barði hann með járnkeðju.
Norðmanninum tókst þó að sleppa út á götu á nærfötunum og kalla eftir hjálp.
„Ég bað hann um að koma aftur heim til mín af því ég vildi komast að því hvort að þessi nánungi hefði tekið dót frá mér,“ sagði George við lögreglu.
„Ég var með vin viðstaddan af því ég vildi passa að hann gæti ekki farið svo ég gæti athugað tölvuna mína og símann hans. Vinurinn var þarna til öryggis ef hann skyldi reyna að stinga mig eða berja mig með hamri.“
George neitaði því að hafa beitt Audun ofbeldi og sagði marblettina sem hann hlaut hugsanlega geta stafað af því að hann er með HIV.
Hann var þó fundinn sekur og verður dæmdur þann 16. janúar næstkomandi.
Líklegt þykir að hann muni fá fangelsisdóm fyrir afbrot sín.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is