Rann tugmilljarða hagnaður útrásarfyrirtækja til eiganda í duldum skattaskjólum erlendis?
Indriði Þorláksson, fyrrverandi ríkisskattstjóri, segir athyglisvert hversu stór hluti eignarhalds íslensku útrásarfyrirtækjanna, 50 til 70%, sé í höndum erlendra aðila, eða félaga sem séu formlega séð erlendis. Indriði sagði í viðtali í Silfri Egils í dag að margt benti til þess að þessi félög væru síðan aftur í eigu Íslendinga, en hann hefði ekki haft aðgang að upplýsingum til að leiða það endanlega í ljós. Hann sagði að samsvarandi hlutfall af hagnaðinum „færi beint þangað út, og ef um væri að ræða íslenska aðila sem hafa falið sig og ekki gefið þetta upp, þá er skatturinn af þessu glatað fé fyrir íslenska ríkið.“
Samkvæmt úttekt Indriða hafa eigendur bankanna hafi fengið greidda um 80 milljarða króna á síðustu þremur árum í arð- og launagreiðslur til æðstu stjórnenda. Indriði sagði að af þessu væru um 60 milljarðar arðgreiðslur sem hefðu farið til þessara erlendu aðila í hlutfalli við eignaraðildina.
Indriði sagði að fyrirfjármálafyrirtæki þýddi þetta fyrirkomulag það að hagnaðurinn, þegar hann væri greiddur út í formi arðs o.s.frv., rynni nánast skattlaus til þessara aðila, í sumum tilvikum alveg skattlaus.
„Þetta er falið eignarhald,“ sagði Indriði. „Þegar litið er nánar á hlutina kemur í ljós að eignarhaldsfélag á Íslandi sem talinn er eigandinn og er formlega séð eigandinn, er síðan í eigu erlendra aðila.“ Indriði sagði að rannsókn hefði leitt í ljós að langflest þessara erldnu eignaharhaldsfélaga væru í Lúxemborg, Hollandi og aflandssvæðum, eins og Ermasundseyjunum og Bresku Jómfrúreyjum, þar sem minni félög væru staðsett en jafnframt dótturfélög íslensku bankanna. Dæmi um það væri útibú Singer & Friedlander á eyjunni Mön.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is