Viðskiptablaðið: Íslensk stjórnvöld hættu við loftvarnareftirlit Breta. Sögðu Geir og Ingibjörg ekki satt?
Það voru íslensk stjórnvöld, en ekki NATO, sem ákváðu að Bretar skyldu ekki sinna loftvarnareftirliti
hér á landi undir lok þessa árs eins og áætlað hafði verið. Ákvörðunin var tekin af tveimur ástæðum, annars vegar vegna milliríkjadeilu landanna vegna Icesave málsins og hins vegar var um hreina sparnaðaraðgerð að ræða.
Þetta er fullyrt í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun, fimmtudag. Kveðst blaðið hafa heimildir fyrir þessu bæði innan NATO og eins íslensku stjórnsýslunnar.
Þetta stangast á við opinber ummæli Geirs H. Haarde forsætiráðherra og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra um málið 14. nóvember sl. Þau sögðu bæði að þetta hefði verið ákveðið af NATO.
Viðskiptablaðið vitnar í ummæli Geirs: „Það er hætt við þessar æfingar af ástæðu sem NATO getur best útskýrt,“ sagði hann á blaðamannafundi og kvað íslensk stjórnvöld ekki hafa farið fram á þessa ákvörðun. Þá ítrekaði Ingibjörg Sólrún einnig, á sama fundi, að þetta hefði verið ákvörðun NATO.
Bandarískur hernaðarsérfræðingur sem Viðskiptablaðið vitnar í og segir vel kunnugan málefnum Íslands telur að ákvörðun sem þessi, þ.e. að afþakka loftvarnareftirlit, veiki verulega málstað Íslands þegar varnarþörf landsins er skilgreind.
„Gallinn er sá að Ísland hefur aldrei skilgreint eigin varnarþörf,“ segir hernaðarsérfræðingurinn, sem vildi ekki láta nafns síns getið. Hann segir að erfitt sé fyrir Ísland að fara fram á það við NATO að loftvarnareftirliti hér sé sinnt af varnarbandalaginu og hætta svo við eftir á.
„Þrátt fyrir ástandið á Íslandi í dag á þetta líklega eftir að koma í bakið á þeim [íslenskum
stjórnvöldum]. Þegar varnarþörf landsins verður skilgreind á vettvangi NATO geta þeir sagt að fyrst að Ísland getur hætt við 6 vikur af 24 sé greinilega ekki þörf á því að á Íslandi dvelji þotur NATO hálft árið,“ segir hann í Viðskiptablaðinu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is