Miðvikudagur 24.12.2008 - 09:44 - Ummæli ()

Efnahagsvandinn eykur á áfengisvanda kvenna – margar í felum með drykkjuna

drink.jpgValgerður Rúnarsdóttur, yfirlæknir á Vogi, segir umræðuna um efnahagskreppuna fara illa í þá sem eru veikir fyrir þótt ekki hafi mikið breyst í þeirra persónulega umhverfi.

Valgerður segist í Morgunblaðinu í dag telja að erfiður tími framundan geti geti aukið á vanda kvenna með fíknisjúkdóma þar sem þær hafi tilhneiginingu til að fela drykkju sína og aðra neyslu meira en karlar.

Valgerður segir konur fá allskyns meðferð við sínum vanda eins og lyf við þunglyndi og svefntruflunum, sem séu þó í mörgum tilfellum afleiðingar drykkju og neyslu á ólöglegum vímuefnum eða lyfjaneyslu.

Hún segist það virðast auðveldara að sinna afleiðingum drykkjuvandamála kvenna en ráðast að rót vandans. Lyfin sem þær taka sé einnig mun auðveldara að fela en drykkju.

Valgerður segir ástæðuna fyrir því að konur séu oftar settar á lyf en karlar kunna að vera að þær leiti hugsanlega frekar eftir aðstoð en þeir og beri upp einkenni við lækna.

Konum sem leita sér aðstoðar í áfengismeðferð hjá Vogi á undanförnum árum hefur fjölgað mjög, en hópar kvenna, ekki síst miðaldra, veigra sér við að leita aðstoðar og þjást í felum heima hjá sér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is