Föstudagur 02.01.2009 - 09:02 - Ummæli ()

Aldraðir í Seli á Akureyri fluttir úr einbýli í tvíbýli – aðstandendur óttast að þetta verði þeim ofviða

kristnes_3.jpgStjórn Sjúkrahússins á Akureyri hefur ákveðið að um áramótin verði Sel, hjúkrunardeild aldraðra, lögð niður í hagræðingarskyni. Sparnaður vegna þessa er áætlaður um 100 milljónir króna, en í Seli dvelja ellefu aldraðir Akureyringar í einbýli með sína persónulegu
muni. Þeir munu allir flytja á Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit og flestir fara úr einbýli í fjölbýli við flutningana. Aðstandendur óttast að flutningarnir verði þeim ofviða.

Þetta kom fram í fréttum RÚV í morgun en Arna Rún Óskarsdóttir, yfirlæknir á Seli og á öldrunarlækningadeild á Kristnesi, segir það að bjóða fólkinu tvíbýli faglega afturför.

Hún segir að þrátt fyrir góðan undirbúning kvíði íbúarnir flutningnum, en að á Kristnesi fái fólkið sambærilega hjúkrunarþjónustu og nú er á Seli. Helsta breytingin verði á persónulegum högum fólks sem nú þurfi að deila herbergi með öðrum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is