Íslendingar: Eta lambaket með gosi eða bjór, verða allra þjóða elstir og slá met í farsímaeign
Fréttablaðið rýnir í tölur Hagstofu Íslands í dag, en samkvæmt þeim voru Íslendingar tæplega 320 þúsund talsins hinn 1. desember síðastliðinn. Fólksfjölgun hefur verið óvenju mikil undanfarin ár en samkvæmt íbúaskrá Þjóðskrár voru landsmenn 319.756 í byrjun desember samanborið við 312.872 árið áður.
Þetta jafngildir um 2,2% fjölgun á einu ári. Ekki hefur orðið slík fólksfjölgun hér á landi síðan um miðbik sjöunda áratugar 20. aldar og hvergi í Evrópu fjölgar fólki jafnhratt og hér.
Íslendingar geta vænst þess að verða allra karla og kerlinga elst. Meðalævilengd kvenna er 83 ár en karla 79 ár.
90% Íslendinga hafa lífsviðurværi af þjónustugreinum, 2% starfa við fiskveiðar og -vinnslu og álíka margir við landbúnað. Þrefalt fleiri vinna í fjármálaþjónustu.
Íslendingar slá heimsmet í lambakjötsáti sem seint verður slegið. Meðaljóninn innbyrðir rúmlega 24 kíló af lambakjöti á ári en af Norðurlandaþjóðunum komast Norðmenn næst þeim með um sex kíló á mann.
Íslendingar eta 44 kíló af fiski og svipað af sykri, en grænmeti fellur þeim ekki í geð í sama mæli og nágrannaþjóðunum.
Þessu skola Íslendingar niður með gríðarlegu magni af gosdrykkjum og ekki ekki síður bjór, en neysla hans hefur aukist úr 47 lítrum á mann í áttatíu á áratug.
Allir eiga farsíma og bílaeignin er 662 á hverja þúsund Íslendinga.
Íslendingar hafa fækkað ferðum í kvikmyndahús á síðustu árum en fjölgað ferðum í leikhús. Þá hefur sjónvarpsgláp aukist enda hefur útsendum klukkustundum
sjónvarpsstöðvanna fjölgað úr 23 þúsund í 71 þúsund á tíu árum.
Sumt breytist þó ekki. Flatarmál landsins er og verður 103 þúsund ferkílómetrar, Hvannadalshnúkur er enn hæstur fjalla og Öskjuvatn dýpst vatna, Þjórsá lengst áa og fossinn Glymur í Botnsá hæstur fossa.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is