Miðvikudagur 07.01.2009 - 13:38 - Ummæli ()

Rússar loka fyrir gasflutning til Evrópu um Úkraínu

russagas.jpgRússar lokuðu nýlega á gasleiðslur til Úkraínumanna vegna deilna um greiðslur og verð á gasi en í morgun skrúfuðu Úkraínumenn fyrir gasleiðslur sem liggja um landið frá Rússlandi til Austurríkis, Rúmeníu, Slóveníu, Slóvakíu, Tékklands og Ungverjalands.

Talið er að þetta kunni að valda talsverðum erfiðleikum, ekki síst vegna mikilla kulda í Evrópu og aukinnar gasnotkunar samfara því.

Forsvarsmenn Evrópusambandsins segja að Rússland og Úkraína haldi Evrópusambandinu í gíslingu í milliríkjadeilu um verð á rússnesku jarðgasi og meintra skulda Úkraínumanna við Rússa.

Sambandið krefst þess að flutningar á gasi til Evrópu hefjist strax á ný. Rússneska gasfyrirtækið Gazprom segir að Úkraínumenn skuldi fyrirtækinu rúmar 600 milljónir dollara, sem svarar rúmum 72 milljörðum króna en Úkraínumenn segjast hafa greitt skuldina.

Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, ræddi við forsætisráðherra Rússlands, Vladimír Pútín og forsætisráðherra Úkraínu, Júlíu Tymoshenko, í dag til þess að þrýsta á kröfur sambandsins. Þetta er í fyrsta skipti sem ESB hefur bein afskipti af viðskiptadeilum milli landa.
Frá þessu greinir m.a. á mbl.is og Rúv


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is