Samfylkingin í Hafnarfirði: Verið að þvinga starfsfólk til þátttöku í einkarekstri á Suðurnesjum
Stjórn Samfylkingarinnar í Hafnarfirði segir að svo virðist sem megintilgangurinn með því að leggja niður St. Jósefsspítala í bænum felist í því að þvinga núverandi starfsfólk til þátttöku í einkarekstri sem ákveðið hafi verið að skuli verða staðsettur í Reykjanesbæ og falli vel að hugmyndum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu.
Fram hefur komið í fréttum að auðmaðurinn Róbert Wessman hefur sýnt mikinn áhuga á því að koma að rekstri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Bæjarstjórinn á Suðurnesjum, Árni Sigfússon, staðfesti á mbl.is í gær að Róbert væri inni í myndinni í sambandi við endurskipulagningu heilbrigðismála á svæðinu.
Í ályktun sem stjórn Samfylkingarinnar í Hafnarfirði sendi frá sér í morgun segir að slíkan gjörning geti Samfylkingin í Hafnarfirði ekki stutt, enda sé hann í algjörri andstöðu við þær hugmyndir sem flokkurinn hafi lagt fram um gagnsæa og vandaða stjórnsýslu, þar sem almannahagsmunir séu settir ofar þröngum eiginhagsmunum einstakra stjórnmálaflokka eða fjármagnseigenda.
Bent er á að St. Jósefsspítali hafi verið starfræktur í Hafnarfirði í yfir 80 ár og notið mikils stuðnings frá sínu nærsamfélagi, m.a. með reglulegum gjöfum frjálsra félagasamtaka í bænum til spítalans. Í tillögum heilbrigðisráðherra felist engar trúverðugar skýringar á því hver tilgangur breytinganna sé og með hvaða hætti þær eigi að þjóna betur hagsmunum þeirra sem þurfa á þjónustu spítalans að halda, eða hvernig bæta eigi upp þau verðmætu störf sem flytjast í burtu með niðurlagningu spítalans.
Stjórnin segir að hugmyndir ráðherrans um einkavæðingu heilbrigðiskerfisins samræmist á engan hátt þeim grunngildum sem Samfylkingin byggi tilvist sína á né stefnu Samfylkingarinnar í heilbrigðismálum, sem meðal annars kveði á um „að tryggja skuli aðgang allra að heilbrigðiskerfinu, óháð efnahag“.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is