Miðvikudagur 14.01.2009 - 06:49
- Ummæli
()
Lán til fjármálafyrirtækja draga dilk á eftir. Tap skattgreiðenda gæti orðið 270 milljarðar
Skattgreiðendur gætu tapað allt að 270 milljörðum króna vegna framsals á kröfum Seðlabankans á fjármálafyrirtæki til ríkisins.
Morgunblaðið segir frá þessu í dag.
Fram kemur í blaðinu að alls voru framseldar kröfur að fjárhæð 345 milljarðar króna. Blaðið segist hafa heimildir fyrir því að 75 milljarðar hafi verið með tryggum veðum í ríkistryggðum bréfum, en afgangurinn verið með ótryggum veðum sem mikil óvissa sé um hvernig innheimtist. Þorri þeirra hafi verið bréf sem gömlu viðskiptabankarnir gáfu út og séu þau verðlaus í dag.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is