Oprah elskar brjóstin á Kate Winslet
Oprah Winfrey viðurkenndi í sjónvarpsþætti sínum í gær að hún sé mikill aðdáandi brjóstanna á Kate Winslet.
Kate var gestur í þætti Opruh ásamt öðrum vinningshöfum Golden Globe-verðlaunanna og þar sagðist Oprah elska á henni brjóstin.
„Ég elska það að þú skulir vera með ekta brjóst,“ sagði Oprah.
„Þegar maður liggur þá fara alvöru brjóst hvort í sína áttina! Guð blessi alvöru brjóstin þín!“
Kate er alls ekki óvön því að koma nakin fram í kvikmyndum og sagði nýlega að það verði auðveldara og auðveldara eftir því sem hún geri það oftar.
„Ég kem aldrei nakin fram bara til þess að koma nakin fram,“ sagði hún.
„En það að fara úr fötunum fyrir framan fólk og myndavélar verður alltaf auðveldara og auðveldara af því að ég er orðin vön því.“
„Og eftir að maður hefur eignast börn og verið á fæðingardeild þá satt best að segja hverfur allt óöryggi.“
„Ég skammast mín ekki fyrir líkama minn. Og hin ekta ég, – þessi alvöru, ekta ég – er nokkuð sem aðeins eiginmaðurinn minn mun nokkurn tímann sjá.“
„Af því að, jú, ég er nakin þarna á skjánum, en það er notuð falleg lýsing og ég er með farða á líkamanum.“
Fyrir þá sem hafa áhuga þá má berja brjóstin umtöluðu augum hér á vefsíðu The Sun.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is