Eignarhald Viðskiptablaðsins skýrist: Róbert Wessman er aðaleigandi
Upplýst hefur verið hverjir eru í nýjum eigendahópi Viðskiptablaðsins, sem mikil leynd hefur ríkt um.
Róbert Wessman staðfestir í samtali við Vísi.is að félag hans, Salt Investment, verði eigandi að 40% og stærsti hluthafinn í Myllusetri, nýstofnuðu útgáfufélagi blaðsins. Róbert segir aðeins eftir að ganga frá formsatriðum vegna kaupa á útgáfunni.
Heimildir Vísis herma að Haraldur Johannessen, ritstjóri Viðskiptablaðsins, eigi 10% í félaginu og Guðbjörg Matthíasdóttir hafi skráð sig fyrir 30% hlut í félaginu. Vísir segir það þó geta breyst því Guðbjörg hafi ásamt hópi fjárfesta lýst yfir áhuga á því að eignast Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins. Fari svo að Guðbjörg eignist Árvakur getur hún ekki átt í Myllusetri vegna skilyrða Glitnis um að kaupendur Árvakurs eigi ekki hlut í öðrum fjölmiðlum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is