Föstudagur 16.01.2009 - 08:14 - Ummæli ()

Framboð leiguíbúða hefur tvöfaldast frá sumarlokum og leiga lækkað um allt að 20%

reykjavik.jpgNú eru hátt í 1.000 íbúðir á skrá hjá Leigulistanum, þar af 825 á höfuðborgarsvæðinu.
Í fyrra voru 200 íbúðir á skrá á sama tíma.

Frá þessu segir í  Morgunblaðinu í dag.

Íbúðum fór að fjölga á skrá í byrjun sumars og hafa nú tvöfaldast frá því í sumarlok.
Hildur Ketilsdóttir, starfsmaður Leigulistans, segir leiguverð almennt hafa lækkað um 20%.

Leiguverð á 2-3 herbergja íbúðum í 101 hafi áður ekki farið undir 2.000 krónur á fermetrann, en nú sé fermetrinn á 1.600 krónur og í sumum tilfellum ekki nema 1.250 krónur.

Hjá leigumiðluninni Rentus hefur verð lækkað um 10-15% að jafnaði.  Björgvin Víðir Guðmundsson, viðskiptastjóri, segir meira samið um leiguverð en áður. Í sumum tilfellum hafi verið um talsverða lækkun að ræða, minni í öðrum.

Hildur segir að jafnvel þó leiguverð hafi lækkað vegna aukins framboðs séu takmörk fyrir hversu fólk getur lækkað leiguverð vegna afborgana á lánum. Þó séu dæmi um að fólk sé að borga með húsnæði sínu.

Þá er líka mun meira framboð á atvinnuhúsnæði en verið hefur og hjá Leigulistanum er framboðið tvöfalt meira en á sama tíma í fyrra.
Hjá fasteignasölunni Eignamiðlun gengur nú betur að leigja út íbúðir en atvinnuhúsnæði.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is