Föstudagur 16.01.2009 - 13:23 - Ummæli ()

Guðmundur Ólafsson: Lögregla í Lúx rekur slóð til Caymaneyja. Þrír sekir um milljarðaþjófnað

gudmundur-olafsson.jpgGuðmundur Ólafsson hagfræðingur segir að að þeir 25 milljarðar króna sem Sheik Al Thani greiddi fyrir hlut sinn í Kaupþingi hafi farið í gegnum Kaupþing Lúxemborg og þaðan inn á leynireikninga þriggja manna í Caymaneyjum.

Guðmundur sagði í vikulegi spjalli sínu við Sigurð G. Tómasson á Útvarpi Sögu í morgun að greiðsla upp á 13 milljarða króna hafi verið „flutt beint inn á reikninga í Caymaneyjum, og síðan hlutabréf sem síðan voru seld Líbýumönnum og andvirðið sent sömu leið. Á Cayman,“ samkvæmt frétt á DV.is um málið.

Guðmundur sagði í þættinum að lögregluyfirvöld í Lúxemborg hafi rakið peningaslóð frá Íslandi til Cayman og að þrír einstaklingar hafi gerst sekir um milljarðaþjófnað. Þeir Sigurður G. Tómasson og Guðmundur sögðu í þættinum að allstaðar annarsstaðar væru þessir menn komnir bak við lás og slá í gæsluvarðhald þar til annað kæmi í ljós. En ekki á Íslandi.

Guðmundur sagði þrjá menn innan Kaupþings hafa staðið að gerningnum en vildi ekki gefa upp nöfn þeirra. Hann segir í DV að rangt sé haft eftir sér í frétt á Vísi.is að heimildir hans séu komnar frá lögreglunni í Lúxemborg. Heimildarmenn sína fyrir upplýsingunum gefi hann ekki upp.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is