Þriðjudagur 20.01.2009 - 23:53 - Ummæli ()

Eldur logar enn glatt við Alþingishúsið. Mótmælin gætu staðið í alla nótt.

motmaeli20jan09.jpgFjölmennur hópur fólks var enn við Alþingishúsið þegar klukkan nálgaðist miðnætti. Mikill hávaði er á staðnum, hróp og köll, og eldurinn sem kveiktur var logar glatt. Hafa mótmælendur stöðugt bætt á hann ýmiss konar eldivið.  Óljóst er hve lengi mótmælin munu standa, en heyrst hefur að hluti fólksins sem þarna er ætli að halda uppteknum hætti í alla nótt og jafnvel fram að þingfundi eftir hádegi á morgun.

Lögreglan hefur mikinn viðbúnað á staðnum og má segja að allt lögreglulið höfuðborgarsvæðisins sé í viðbragðsstöðu. Slökkviliðs- og sjúkrabifreiðum hefur verið komið fyrir í nágrenni miðbæjarins.

Helsta krafa mótmæenda er að efnt verði til þingkosninga eins fljótt og auðið er.

 


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is