Miðvikudagur 21.01.2009 - 09:28 - Ummæli ()

Lúxusbílar fyrir íslenska auðmenn í Lúxemborg. Leynd hvíldi yfir bílunum

bugatti.jpgHátt í tíu glæsibifreiðar eyrnamerktar vildarvinum Landsbankans voru geymdar í bílageymslu á vegum útibús bankans í Lúxemborg og sá bankinn um fjármögnun þeirra að einhverju leyti.

Þetta kemur fram í Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins, í dag.

Markaðurinn segir að mikil leynd hafi hvílt yfir bílunum. Ekki liggi fyrir hvort bankinn keypti bílana eða tók þá á rekstrarleigu og nýtti sér skattalegt hagræði af viðskiptunum með svipuðum hætti og þegar hann tók bíla á leigu fyrir almenna starfsmenn bankans. Bílarnir í geymslunni hafi ekki allir verið skrifaðir á bankann. Nokkrir voru geymdir þar fyrir vildarviðskiptavini, sem höfðu keypt þá í eigin reikning.

Markaðurinn segir að í einhverjum tilvikum hafi forsvarsmenn Landsbankans í Lúxemborg átt frumkvæðið að því að kaupa bílana fyrir viðskiptavini sína. Hver bíll hafi verið eyrnamerktur tilteknum viðskiptavini og var hann eini notandi hans.

Blaðið segir að þjónusta bankans hafi verið á móti því að viðskiptavinir hafi lagt fram eina til eina og hálfa milljón evra í bankann. Bankinn keypti bíl í samræmi við óskir vildarviðskiptavinarins, sem greiddi leigu af bílnum.

Samkvæmt heimildum Markaðarins sá starfsmaður á vegum bankans um að aka bílunum hvert sem var á meginlandi Evrópu, allt eftir því hvar eigendur bílanna voru staddir hverju sinni og gátu þeir gengið þar að bílunum vísum.

Eftir því sem næst verður komist var Ascari-akstursbrautin í nágrenni Sevilla á Spáni vinsæll áfangastaður íslenskra auðjöfra sem áttu bíla í geymslu Landsbankans.

Markaðurinn segir erfitt er að áætla verðmæti bílaflotans. Þar hafi meðal annars verið Bugatti Veyron, sem er með dýrustu bílum í heimi. Einn Bugatti kosti frá einni til 1,5 milljóna evra, jafnvirði allt að 200 milljóna íslenskra króna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is