Miðvikudagur 21.01.2009 - 09:44
- Ummæli
()
Mótmæli boðuð á Akureyri síðdegis. Bæjarbúar hvattir til að taka með sér potta og sleifar
Boðað hefur verið til mótmælafundar á Ráðhústorginu á Akureyri kl. 17 í dag. Fundarboðendur hvetja bæjarbúa til að mæta með potta og sleifar „eða hvaðeina sem framkvæmir hávaða svo að ríkisstjórnin vakni“, eins og það er orðað.
„Við mótmælum því að ríkisstjórn Íslands hafi hneppt þjóðina í skuldafangelsi og að hún neiti því að almenningur fái að kjósa“, segir ennfremur í tilkynningunni sem undirrituð er „Fólkið í landinu“ en kemur frá Hugin Frey Þorsteinssyni aðstoðarmanni Þuríðar Backmans þingmanns Vinstri grænna.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is