Fimmtudagur 22.01.2009 - 18:03 - Ummæli ()

Ingibjörg vill kosningar í vor. Ríkisstjórnin starfi áfram og sinni brýnum verkefnum

isg-samfylking1.jpgIngibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar segist vilja að kosið verði í vor og telur að stjórnarflokkarnir geti náð samkomulagi um það. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.

Hún leggur áherslu á að ríkisstjórnin starfi áfram svo brýnum verkefnum verði sinnt.

Hún segist vera að ná kröftum á ný og koma aftur til starfa að lokinni meðferðinni sem hún hefur verið í í Svíþjóð. Hún er væntanleg þaðan síðdegis á morgun. Hún segir aðgerðina hafa gengið „alveg ágætlega.“

Ingibjörg sagði ríkisstjórnarsamstarfið enn halda, hvorugur flokkurinn hafi slitið því. „Við stöndum saman meðan stætt er, ef svo má segja,“ sagði hún. „Eg er þeirrar skoðunar hins vegar að það eigi að boða til kosninga í vor og mun núna þegar ég kem heim einhenda mér í það að það verði gert. Í sjálfu sér geta stjórnarflokkarnir báðir staðið saman að því, ef ég skil það rétt.“

Hún segist hafa rætt það við Geir Haarde að mikilvægt sé að kjósa í vor og að báðir flokkarnir geti boðað til þeirra kosninga.

„En það sem ég mun líka einhenda mér í, er að sjá til þess að það verði starfhæf ríkisstjórn í landinu því það verður auðvitað líka að vera. Það er minnsta málið að boða til kosninga, það er meira mál að takast á við þau verkefni sem framundan eru,“ sagði Ingibjörg Sólrún í samtali við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, þingfréttamann RÚV.

Hún segist horfa á höfuðmein sitt og meinið í íslensku samfélagi með svipuðu hugarfari af hliðarlínunni: „Það þýðir lítið fyrir mig að standa og hrópa og kalla og reita hár mitt. Ég verð einfaldlega að taka ábyrgð á þeirri stöðu sem upp er kominog reyna að nýtabestu sérfræðiþekkingu sem völ er á til að takast á við meinið og reyna svo að vinna hvern einasta dag með því að fara á fætur og færa annan fótinn fram fyrir hinn. Það er verkefnið.“

Ingibjörg sagði ályktun Samfylkingarinnar í Reykjavík í gærkvöldi ekki hafa komið á óvart. Það viðhorf hefði lengi verið hjá Samfylkingunni að Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti að axla meiri ábyrgð á því sem hér hefði gerst, ábyrgð sem Samfylkingin bæri ekki.

Í fréttum RÚV var staðhæft að margir þingmenn Samfylkingar hefðu efasemdir um stjórnarsamstarf með Vinstri grænum og teldu skynsamlegra að starfa áfram með Sjálfstæðisflokknum fram að konsingum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is