Fimmtudagur 22.01.2009 - 17:36 - Ummæli ()

Össur: Stjórnarsamstarfinu ekki slitið í dag eða á morgun

ossur200×3001.jpgSamfylkingin mun ekki ganga þannig frá borði að það verði stjórnarkreppa í landinu, segir Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra í viðtali á Mbl.is.

Hann segir enga ákvörðun hafa verið tekna um að slíta stjórnarsamstarfinu og engar formlegar samræður verið um það, þó ýmsir þingmenn „hafi verið að lýsa angist sinni yfir þessari stöðu.“

Össur sagði „engum blöðum um það að fletta að margt sem við höfum óskað eftir hefur ekki náð fram að ganga,“ og nefndi brotthvarf seðlabankastjóra í því sambandi.

„Við erum auðvitað í sambandi við okkar formann í Stokkhólmi, sem kemur heim á morgun. Þessu stjórnarsamstarfi verður ekki slitið í dag. Ég er nú bara starfsmaður á plani en það er ekkert í kortunum bendir til þess að því verði heldur slitið á morgun.“

Össur segir djúpa og róttæka andstöðu við stjórnarsamstarfið innan Samfylkingar ekki hafa leitt til þess að uppúr hafi soðið milli stjórnarflokkanna.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, kemur til landsins á morgun.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is