Fimmtudagur 22.01.2009 - 08:38 - Ummæli ()

Þingmaður VG um ofbeldið í nótt: „Auðvitað á þessi háttsemi að sæta refsingu“

atligislason.jpgAtli Gíslason þingmaður VG sagði í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun að háttsemi mótmælenda sem köstuðu grjóthellum í lögregluþjóna í nótt, málningu að Alþingishúsinu og Stjórnarráðinu og reyndu íkveikju ætti að sæta refsingu. Hann kvaðst telja að lögreglan hefði vitneskju um hvaða einstaklingar ættu hlut að máli.

„Auðvitað á þessi háttsemi að sæta refsingu“, sagði þingmaðurinn þegar stjórnandi þáttarins spurðu um viðbrögð hans við mótmælunum sem fóru úr böndunum í nótt.

Pétur Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem einnig tók þátt í umræðunum, fordæmdi skemmdarverkin og árásirnar á lögregluna. Hann spurði Atla hvað hæft væri í sögusögnum um að þingmenn VG hefðu hvatt til eða stuðlað að árásum á Alþingishúsið í fyrradag. Atli hafnaði þeim sögum algjörlega, en lagði áherslu á að stjórnvölduð leituðu að rót óeirðanna og brygðust við þeim. Hann skoraði á mótmælendur að viðhafa friðsamleg mótmæli og ekki láta reiði sína bitna á lögreglunni.

Hlusta má á umræður þingmannanna hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is