VG fær heilbrigðisráðuneytið. Áform Guðlaugs Þórs endurskoðuð. Hætt við lokun St. Jósefsspítala?
Vinstri hreyfingin – grænt framboð fær heilbrigðisráðuneytið í nýrri ríkisstjórn með Samfylkingunni sem hugsanlega verður mynduð í dag. Samkvæmt heimildum Eyjunnar hefur verið gengið frá því bak við tjöldin að Ögmundur Jónasson þingflokksformaður VG og formaður BSRB verði heilbrigðisráðherra. Búist er við því að fyrsta verk hans í embætti verði að hefja endurskoðun á áformum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um niðurskurð og uppsagnir í heilbrigðisþjónustunni. Þá er talið að hinn nýi ráðherra hætti við að leggja af starfsemi St. Jósefsspítala í núverandi formi.
Ögmundur Jónasson er yfirlýstur andstæðingur hvers kyns einkavæðingar í heilbrigðiskerfinu. Meðan hann er ráðherra munu því allar hugmyndir á því sviði verða settar á ís. Óvíst er hvernig Ögmundur mun snúa sér í málefnum hinnar nýju Sjúkratryggingarstofnunar en hann var andvígur því að hún væri sett á stofn. Sagði Ögmundur að með henni væri verið að búa í haginn fyrir einkavæðingu heilbrigðiskerfisins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is