Bossinn á Beckham er happagripur
Svo virðist sem nýju liðsfélagar Davids Beckham í AC Milan álíti að bossinn á honum boði þeim gæfu í fótboltanum.
David skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið á sunnudaginn og í tilefni þess gáfu þeir Clarence Seedorf og Andrea Pirlo honum lítið klapp á rassinn.
Ítalskir fjölmiðlar virðast einnig líta á svo á að Beckham sé happafengur fyrir liðið, en það hefur ekki tapað leik síðan hann byrjaði.
„Það vita allir að Beckham hefur alveg sérstakt lag á fótbolta og hann hefur sannað það síðan hann mætti,“ er haft eftir innanhússmanni hjá AC Milan.
„Ítalía er hjátrúarfullt land og fólk snertir oft hluti sem það heldur að færi því lukku – leikmennirnir eru að gera það sama við Beckham þegar þeir snerta bossann á honum af því að þeir líta á hann sem happagrip.“
Svo virðist sem það gangi ýmislegt á í búningsklefa AC Milan eftir að Beckham gekk til liðs við það, en Marco Borriello lýsti því yfir á dögunum að hann langi mikið til að ganga úr skugga um það hvort Beckham sé eins vel niðurvaxinn og hann lítur út fyrir að vera í auglýsingunum fyrir Armani.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is