Þráinn í framboð fyrir Framsókn
Skýrt er frá því í Fréttablaðinu í dag að Eyjubloggarinn Þráinn Bertelsson rithöfundur hyggist gefa kost á sér í framboð fyrir Framsóknarflokkinn í komandi kosningum. Hann stefnir að því að leiða annan hvorn lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum.
Frétt blaðsins er svohljóðandi:
Auðvitað vil ég bjóða krafta mína fram fyrir flokk sem ætlar sér að endurnýja flokkakerfið á Íslandi og gangast fyrir siðbót í stjórnmálum,“ segir Þráinn Bertelsson rithöfundur. Þráinn stefnir á að taka efsta sæti á lista Framsóknarflokksins í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna í komandi alþingiskosningum. Hann segir siðbót í stjórnmálum hafa verið baráttumál sitt. „Ég er 64 ára gamall og ef ég fer inn á þing þá er það til að koma málum þar fram („with a little help from my friends“) ekki að sitja þegjandi og bíða eftir stöðuhækkun í flokknum. Þess vegna sækist ég eftir að leiða lista. Það væri líka ólíkt mér að vilja vera í eftirrreiðinni. Ég er kominn yfir hestasveinaaldurinn,“ segir Þráinn sem lengi hefur verið kenndur við Framsóknarflokkinn. Hann sagði sig hins vegar úr honum „…þegar Davíð og Halldór skráðu okkur í stríð við Írak…“ en er nú að munstra sig aftur um borð. „Já, römm er sú taug …! Mér finnst hafa verið lögð drög að glæsilegu endurreisnarstarfi í þessum sögufræga flokki og vil gjarna leggja mitt af mörkum til að byggja hér upp öflugan miðflokk með stuðingi dreifbýlis og bændasamtaka. Og ég vil vera með frá byrjun. Sósíalisminn er hruninn. Frjálshyggjan hrunin. Miðjan stendur eftir, skynsemdin og hófsemin.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is