Miðvikudagur 04.02.2009 - 10:14 - Ummæli ()

FT: Nánast vonlaust að reka sjálfstæða peningastefnu á Íslandi – ESB og evra besta lausnin

index.jpgÍ forystugrein breska viðskiptablaðsins Financial Times í dag segir að alltaf hafi verið erfitt, ef ekki vonlaust, að reka sjálfstæða peningastefnu í litlu opnu hagkerfi eins og á Íslandi.
Morgunblaðið greinir frá þessu.

Í grein FT segir að nú sé besta lausnin fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru, enda um helmingur utanríkisviðskipta landsins við evrusvæðið.

FT segir að þrátt fyrir bankahrunið og aðra erfiðleika sé grundvöllur efnahagslífs Íslands enn traustur og árangur þjóðarinnar raunar öfundsverður.
Í foystugreininni er bent á að Íslendingar hanni og framleiði tækjabúnað fyrir sjávarútveg um allan heim, álfélög hafi fjárfest umtalsvert í landinu vegna ódýrrar vatns- og jarðvarmaorku og ferðaþjónusta sé góð.

Vandamálin séu hins vegar mikil þar sem landið sé statt í miðri banka- og fjármálakreppu, stöðugleikinn í stjórnmálum horfinn og ríkisstjórnin þurfi ekki eingöngu að bjarga efnahag landsins heldur einnig koma á friði í stjórnmálum.

Jóhanna Sigurðardóttir, nýr forsætisráðherra, geti því ekki beðið með umbætur.

FT segir bestu lausnina fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru. Það yrði því  skaði ef samstarfsflokkurinn í nýrri ríkisstjórn heldi áfram að berjast gegn því.
Gerist það hinsvegar verði Ísland að skoða möguleikann á að taka upp gjaldmiðlasamstarf við eitthvert af hinum Norðurlöndunum samhliða því að taka til í rústum bankakerfisins og gera hreint fyrir sínum dyrum varðandi skuldir bankanna.

Þá segir ennfremur að þetta dugi ekki til, forsætisráðherra verði  einnig að koma fram með aðgerðir sem milda áhrif þeirrar aðlögunar, sem hagkerfið gengur í gegnum.

Fólk sem er að tapa vinnu sinni þurfi ný störf, en þau verði þó fæst á fjármálasviðinu. Ísland hafi þó enn margt annað sem það getur selt.

Hér má lesa leiðara Financial Times.

Morgunblaðið segir einnig frá því að Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hafi gert inngöngu í ESB að umræðuefni á fundi borgarstjórnar í gær.
Júlíus Vífill sagði inngöngu í Evrópusambandið myndu breyta talsverðu fyrir sveitarfélögin í landinu, en ekki væri hægt að segja með vissu hvort um einhvern ávinning yrði að ræða.

Á fundinum var rætt um stöðu sveitarstjórnarstigsins gagnvart hugsanlegri aðild Íslands að ESB, en málið var sett á dagskrá að beiðni Samfylkingar og Dagur B. Eggertsson var málshefjandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Júlíusi, sem fór yfir þá fjölmörgu sjóði sem aðildarlönd Evrópusambandsins geta sótt í.

Júlíus Vífill sagði að hvort sem niðurstaðan verði sú að Ísland sæki um aðild að ESB eða ekki liggi framtíð sveitarfélaga ekki í því að snapa styrki í Brussel. Rekstur byggður á styrkjum hafi lítið frumkvæði og lítinn lífsvilja. Styrkir einfaldlega drepi í dróma.
Sveitarfélög þurfi að hafa skýrar áherslur og snúast um að vernda hag fjölskyldna í landinu og skapa fyrirtækjum aðstæður til  að vaxa og dafna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is