Miðvikudagur 04.02.2009 - 09:20 - Ummæli ()

Geir Haarde: Undrast valdagræðgi Samfylkingar og aðför að Sturlu Böðvarssyni

geirhaarde.jpgGeir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, segist í viðtali við Morgunblaðið undrast aðför hinna nýju stjórnarflokka að Sturlu Böðvarssyni, forseta Alþingis.

Hann segir það sæta mikilli furðu ef Framsóknarflokkurinn ætli að taka þátt í því að bola núverandi forseta Alþingis úr embætti. Sturla hafi  notið almenns trausts og viðurkenningar fyrir störf sín og fengið nánast öll atkvæði þingsins þegar hann var kosinn í það ábyrgðarmikla starf.

Geir bendir á að samkvæmt nýjum þingsköpum séu reglur þingsins þær að meirihluti þingmanna verði að óska eftir kosningu á nýjum forseta ef gera eigi breytingu þar sem forsetinn sé kosinn út kjörtímabilið.

Orðrétt segir Geir: „Það þýðir í raun og veru það að meirihluti þingsins, 32 þingmenn í það minnsta, verða að lýsa vantrausti á forseta og mér finnst það lýsa takmarkalausri valdagræðgi Samfylkingarinnar ef hún ætlar að krefjast þess að það verði kosinn nýr forseti á hennar vegum, til þess að sitja þær fáu vikur sem eftir eru af þinghaldi, eingöngu til þess að þjóna þröngum flokkshagsmunum þar sem hinar ólíku valdaklíkur Samfylkingarinnar takast á.

Geir segist hafa fylgst með málum heima í töluverðri undran, en hann er undir læknishendi í Amsterdam og væntanlegur til landsins á morgun.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is