Fimmtudagur 05.02.2009 - 11:12 - Ummæli ()

Frjálshyggjumenn snúa vörn í sókn: Víst voru hér reglur. Blandað hagkerfi en ekki frjálshyggja

andrikiaugl.jpgFrjálshyggjumenn sem standa á vak við vefritið Vefþjóðviljann birta í dag heilsíðuauglýsingar í dagblöðunum undir fyrirsögninni „Hér voru engar reglur“, þar sem með upptalningu á hundruð lagafyrirmæla og reglugerða er reynt að hrekja þá kenningu að rætur bankahrunsins megi rekja til skorts á reglum um starfsemi fjármálafyrirtækja.

Í auglýsingunni segir að sumir haldi að litlar sem engar reglur hafi gilt um fjármálastarfsemi á Íslandi. Hér hafi ríkt „nýfrjálshyggja“ og „frumskógarlögmál“ og vegna regluleysis hafi öllu verið komið í kaldakol. Síðan er birtur langur listi yfir lög og reglugerðir um fjármálastarfsemi og segir að kostnaður hins opinbera við að framfylgja þeim hafi margfaldast á undanförnum árum og nemi mörgum milljónum króna á dag.

Í Vefþjóðviljanum í dag segir að frjálshyggjan megi reyna það þessa dagana, að hana stoði ekki að hafa verið fjarri góðu gamni þar sem ákvarðanir voru teknar í íslenskum þjóðmálum undanfarin ár; henni skuli samt kennt um það sem miður eigi að hafa farið í íslenskum efnahagsmálum síðustu mánuði. Sama megi segja um óskilgreinda systur hennar, „nýfrjálshyggjuna“, sem sé nú úthúðað jafnt í þingræðum nýbakaðra ráðherra í minnihlutastjórn, æsingagreinum gamalla viðskiptafræðinga í dagblöðum og óðra manna skrifum á bloggsíðum.

Vefþjóðviljinn segir að hér á landi hafi ekki ríkt frjálshyggja heldur hafi undanfarin ár verið byggt á hefðbundnu blönduðu hagkerfi. Engin „frjálshyggja“ hafi komið landinu eða neinum öðrum á kaldan klaka.

Orðrétt segir Vefþjóðviljinn:

Það er engin frjálshyggja í því að láta skattgreiðendur ábyrgjast erlend innlán í íslenskum bönkum. Ef hér hefði ríkt frjálshyggja þá hefði engin ríkisstjórn fengið að skuldbinda ríkið til að ábyrgjast stórfelld lán vegna sparireikninga íslensku bankanna erlendis. Íbúðalánasjóður ríkisins hefði ekki stundað æðisgengna keppni við einkabankana með þeim afleiðingum að hér varð til fasteignabóla. Ef hér hefði ríkt frjálshyggja hefðu ríkisútgjöldin ekki verið aukin með ótrúlegum hætti á síðustu árum – og má þar minnast að vinstriflokkanir töldu aldrei nóg að gert í neinum ríkisútgjöldum nema til lögreglunnar. Í þessu landi „nýfrjálshyggjunnar“ hefur opinberum starfsmönnum fjölgað ár frá ári, nýtt Íslandsmet verið sett í opinberum útgjöldum á hverju einasta ári, annar hver maður er í fæðingarorlofi á kostnað ríkisins lungann úr árinu og Íslendingar reka sendiráð í Nýju Delhi og Jóhannesarborg, svo dæmi séu tekin af handahófi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is