Mánudagur 09.02.2009 - 10:30 - Ummæli ()

Alþingi: Hvalveiðar ræddar utan dagskrár í dag

hvalveidar.jpgHvalveiðar verða ræddar í utandagskrárumræðu á Alþingi síðdegis í dag. Málshefjandi er Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins en Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og fjármálaráðherra verður til andsvara.

Umræðan hefst kl. 15.30 og stendur í hálfa klukkustund.

Steingrímur J. Sigfússon hefur lýst andstöðu við ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, Einars K. Guðfinnssonar, að heimila hvalveiðar á ný. Talið er hins vegar að hvalveiðar njóti meirihlutastuðnings á Alþingi og því ólíklegt að hinn nýi ráðherra geti ógilt ákvörðun fyrirrennara síns.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is