Fimmtudagur 12.02.2009 - 20:08 - Ummæli ()

Auðkýfingurinn og útlaginn Boris Berezovsky: Rússar hafa notað Ísland fyrir peningaþvætti

berezovzkyboris.jpgRússneski auðkýfingurinn Boris Berezovsky, sem býr í útlegð í London, fullyrti í viðtali í viðskiptaþætti Jeff Rendell á Sky sjónvarpsstöðinni bresku í kvöld að rússnesk stjórnvöld og auðmenn hafi notað Ísland til peningaþvættis. Illa fengið fé sé síðan flutt til annarra landa og notað til fjárfestinga.

Berezovsky sagði að meðal annars hefði verið fjárfest í þekktum fyrirtækjum, knattspyrnuliðum og fjölmiðlum í Bretlandi.

Berezovsky talaði um Pútín forsætisráðherra Rússlands og aðrir valdamenn hafi  beinlínis keypt Ísland. Hann taldi skýringuna á því vera þá að Ísland stæði utan Evrópusambandsins og byggi við annars konar fjármálareglur. Fram kom í þættinum að embættismenn í utanríkisráðuneyti Íslands hefðu vísað þessu atriði á bug og bent á aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu.  Fjármálareglur hér væru hinar sömu og í öðrum löndum Evrópu.

Berezovsky nefndi tilboð Rússa um að lána Íslendingum fé í kjölfar bankrahrunsins og gaf í skyn að það tengdist hagsmunum þeirra vegna peningaþvættis á Íslandi.

Berezovsky nefndi engin fyrirtæki eða einstaklinga hér á landi með nafni í tengslum við ásakanir sínar. Hann skýrði heldur ekki frá neinum dæmum máli sínu til sönnunar.

Sögusagnir um peningaþvætti rússnesku mafíunnar á Íslandi eru ekki nýjar af nálinni, en fram að þessu hafa engin gögn verið lögð fram sem hægt er að staðreyna.

Berezovsky hefur í mörg ár átt í útistöðum við Pútín forsætisráðherra og hlotið í útlegð sinni dóma fyrir margs konar efnahagsbrot. Hann kveðst saklaus af þeim öllum; um sé að ræða pólitískar ofsóknir. Berezovsky var náinn samstarfsmaður Borisar Jeltsín fyrrverandi forseta Rússlands. Hann er í hópi fjölmargra rússneskra auðkýfinga sem búsettir eru í London.

Berezovsky fullyrti að kaup rússneska auðmannsins Alexander Lebedev á dagblaðinu Evening Standard í London fyrir nokkrum vikum væru liður í áætlun um að búa til áróðursvél fyrir Pútín forseta Rússlands í Bretlandi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is